Sótthreinsiþjónusta

SÓTTHREINSIÞJÓNUSTA

SanoFog

Úðahreinsun

SanoFog tryggir að sótthreinsiefnið okkar dreifist á alla fleti í herberginu án þess að þörf sá á skolun eða þurrkun á eftir. Þessi snertilausa tækni dregur úr hættu á víxlmengun smitsjúkdóma.


Í SanoFog-vélinni er hitunar- og jónunarhverfill notaður til að breyta SanoChem-sótthreinsiefninu í þurra þoku. Á þennan hátt verða til afar fíngerðir dropar sem smjúga inn í öll bil og rifur sem ekki næst til með handvirkum þrifum og sótthreinsun. Óhætt að nota SanoFog nálægt hvers kyns rafeindabúnaði því að meðferðin skilur enga bleytu eða raka eftir sig.

Bókaðu Sanofog Sótthreinsiþjónustu frá Sanondaf núna

SanoStatic

Yfirborðs sótthreinsun

SanoStatic er sama tækni notuð og í SanoFog en með sérstökum stút sem gefur SanoChem-sótthreinsiefninu neikvæða rafstöðuhleðslu og veldur því á þann hátt að það dregst að yfirborðsflötum og festist við þá. Þannig verður til sóttkveikjuvörn sem endist lengi.


Bókaðu Sanostatic Sótthreinsiþjónustu frá Sanondaf núna.


Aðferðin

Virkni SanoVac þrifa og sótthreinsunarmeðferðar fyrir rúmdýnur hefur verið staðfest með vísindalegum aðferðum. Hún er náttúruleg og þurr meðferð, án kemískra efna, sem fjarlægir og drepur rykmaura, gerla, algengar veirur, myglu og sveppagró og aðra mengunarvalda sem leynast í dýnum.

Það sem er einstakt við SanoFog/SanoStatic-úðatækin og SanoChem-tæknina er að gerlarnir eru látnir eyða sjálfum sér. Forvarnarvirkni þess heldur smithættu í lágmarki og tryggir að hún haldist þannig með því að eyða örverufilmunni stig af stigi án þess að nokkurt sýklaónæmi geti myndast. Aðferðina má einnig nota til að losna við smit í einangruðum tilvikum eða til að verjast alvarlegri sýkingu.

  • Sótthreinsar á einfaldan og umhverfisvænan hátt: við notum sótthreinsiefni sem fullnægja sjúkrahússtöðlum og brotnar niður í vatn og súrefni. 
  • Eyðir öllum tegundum gerla, veira, sveppa og gróa samkvæmt gildandi stöðlum.
  • Alhliða sótthreinsun á öllum yfirborðsflötum, einnig á rafeindabúnaði, án þess að valda skemmdum eða tæringu.
  • Varan er ekki ofnæmisvaldandi og er hættulaus mönnum og umhverfi.
  • Framleitt samkvæmt ISO 9001/13485 stöðlum.

  • Sótthreinsar venjulegt herbergi eða svæði á nokkrum mínútum. 
  • Staðfestur árangur þar sem hreinsun með klór eða gufuhreinsun hefur ekki nægt til.
  • Ekki er um að ræða blautþoku- eða úðameðferð. 
  • Notuð er þurrúðameðferð (dropastærð er 5µ í SanoFog og 40µ í SanoStatic) og því verður enginn raki eftir á yfirborði.
  • Við getum meðhöndlað rými sem eru allt frá 1 til 20.000 rúmmetrar að stærð. 
  • Hagkvæmara en aðrar aðferðir, t.d. hreinsun með klór eða gufuhreinsun.
  • Fullnægir sjúkrahússtöðlum um sótthreinsun.
  • Engar hættulegar efnablöndur notaðar (100% niðurbrjótanlegt í náttúrunni og hættulaust mannfólki), ekki ætandi, öruggt fyrir viðkvæm húsnæði og vottað af CASA (Civil Aviation Safety Authority).
  • Eyðir einnig óæskilegri lykt

Share by: